Aðalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Guðbjörg Þóra Sigurðardóttir
  • Netfang: guggathora@hotmail.com
  • Staður: Selfoss
  • Atvinna: Snyrtir
  • Um mig: Ég er fædd það herrans ár 1981 og er kölluð Gugga, Guggan eða Gúccí. Er frekar hæðarskert en bæti það upp með stórri orkuáru :)

Mýrarbolti ...

09. júní 2008 klukkan 17:57

Ég tók þátt í mýrarboltamóti á laugardaginn.  Það var vægast sagt vibba erfitt .. sérstaklega þar sem að þolið mitt mælist á mínuskvarða!! En þetta var samt virkilega skemmtilegt. Liðið sem ég var í var að mestuleyti skipað stelpum, við vorum bara með 2 stráka í liðinu.  Okkur fannst því viðeigandi að skíra liðið okkar Terminators!! einstaklega töffó.  En já við stóðum okkur með prýði stelpurnar og lentum í 4-5 sæti ! mega góðar.  En já ómæ ómæ hvað það var samt mikið skíta veður og hvílíkt sem manni var kalt. ... og það er ekki töff að vera kalt ef maður er í íþróttatopp ... ef þið vitið hvað ég meina!! Skömmustulegur  hehe.  En já allavega .. ég hef trú á að einhverjir njósnarar frá stóru liðunum hafi verið þarna á mótinu og séð drullutaktana og vænti ég þess að fá nokkur tilboð á næstu dögum Glottandi

En júllíjúúú nú eru bara 9 dagar í úgglönd ... ég búin að splæsa mér í keppnissólarvörn númer 50 + !! haha toppið það, nú skal fílabeinshvít húðin ekki fá að brenna.  Tóta þú manst dílinn með sólhlífina!!  Svalur 

Næsta helgi er algjörlega óskipulögð minnir mig ... en koma tímar koma ráð. 

Gúccí .... verðandi brunarúst

Nauts ...

27. maí 2008 klukkan 19:22
Halló halló ég er víst ennþá hérna með hléum.  En nú er að koma sumar og þá fara hlutirir að gerast. Nú er fótboltinn að byrja og ekki seinna vænna en að fara að þjálfa öskurböndin ... því ég spila bara utanvallar og er staða mín því raddbandaþenjari!! Fyrsti leikur er á þriðjudaginn klukkan mig langar að segja 20 ...

En ég er víst búin að fara í sveinsprófið og þykir það nú fréttnæmt! Það gekk nú bara ljómandi vel að mínu mati.  Svalur  víííí

Ég nenni ekki að skrifa meir ... mín yndislega nettenging er að reyna vel á þolrifin mín núna.

Sjáumst í Grindarvík um helgina !!! hæ hoppsasí

Gúccí .... allt að gerast (en samt ekki neitt)

Gleðilega páska

21. mars 2008 klukkan 09:37
Jú sælt veri fólkið.. hér rita ég nokkur orð í boðið háhraða nettengingar í Lazy lane á Flúðum.  Jú og eins og glöggt auga ykkar hefur örugglega nemið þá er ég komin á fætur fyrir allar aldir á lengsta föstudegi ársins. Lazy lane (bústaður ma og pa fyrir þá sem ekki vita en vilja) er ekki búið nútíma myrkargardínum og því vaknar maður fyrr en ella. Sólargeislarnir dönsuðu tango á andlitinu mínu í morgunsárið og urðu þess valdandi að ég reif mig á fætur fyrir klukkan 8.30.  Er ég búin að eiga gæða stundir í morgunsárið, tætti í mig ristað brauð og kaffi með fjölskyldunni.  Spurning að leggja þetta í vana sinn .. taka daginn snemma og njóta samvista við fjöslykduna.

En ég ætla núna að hætta öllu monti og skutla einni aulasögu af undirritaðri hér inn.
Jú eins og ekki allir vita þá er ég farin að æfa fimleika fyrir fullorðna einu sinni í viku. Síðasta færsla fjallaði um horpest sem ég glímdi við í síðustu viku. Nú á miðvikudaginn var taldi ég mig nú orðna fullfríska og skellti ég mér því á fimleikaæfingu eftir vikufrí frá allri hreyfingu. Nú ég verð nú víst að viðurkenna, gegn mínum vilja, að ég er töluvert þrjósk og jafnvel örlítið tapsár þegar kemur að íþróttum og sætti ég mig því ekki við að geta ekki gert sömu stökkin í fimleikunum og þegar ég hætti að æfa fyrir 9 árum síðan!! Hefur þetta orðið til þess að ég þjáist af harðsperrum í vöðvum sem ég vissi ekki að væru til nema í líffræðibókum. Síðasta æfing fór nú svo að ég varð heldur æst í að æfa krafstökk framheljartengingu og tókst mér að mruka á mér úlnliðnum (sinaskeiðabólgan náði hámarki) jú og svo tognaði ég lítillega í náranum hægra megin. Ekki er nú þar með öll rauasagan sögð. Litli snarofvirki íþróttagarpurinn ég lét sér ekki segjast og ákvað að það væri snilldar hugmynd að skella sér á fótboltaæfingu beint eftir fimleikana. Þá myndi ég nú aldeilis hlaupa úr mér harðsperrurnar! Ekki reyndist það nú svo. Ég gat ekkert hlaupið, var með minna þol en ljóta fólkið í mjólkurauglýsingunum og sökum eymla í nára þurfti ég að dúsa í markinu. Sem reyndar var alveg nógu erfitt, en jú vissulega tókst mér nú samt að taka tvo spretti fram völlinn til að reyna að sýna markaskorunarhæfileika mína. Annað skiptið bara árangur og náði ég að skora með einstaklega fallegri tækni þar sem að ég fórnaði mér í gólfið til að ná að skora í fjærhornið. Við þessa reynslu uppskar ég þetta ljómandi fína úrblæðandi brunasár. Við skoðun daginn efitr reyndist vera komin sýking í sárið ... alveg mín heppni ... nú voru góð ráð dýr ... ætti ég að spritta þetta sjálf og reynda þannig að murka sýklunum eða ætti ég að hringja á verkfræðistofuna? jæja ég lét kíkja á þetta upp á sjúkrahúsi .. fékk einstaklega fallegar umbúðir sem ég svo reif af daginn eftir. Ég hef nú rúmri viku síðar náð að vinna bug á sýklunum sjálf vopnuð própanoli, sárakremi og dýraplástri!! HA Ha sökkers.

´..... ég tognaði svo í náranum vinstra megin á æfingu núna á miðvikudaginn. Er skrokkurinn orðin of gamall í sportið ?? ....

Hafið það gott börnin góð og sjáumst á páskaballi á sunnudaginn.

Gúccí ... klaufabárður og gamalmenni í hjáverkum

Góðan daginn frú mín góð ...

10. mars 2008 klukkan 20:07
Já ég sé að ég hef gleymt mánðarlega blogginu mínu í síðasta mánuði og vil ég kenna því um að hann var einfaldlega of stuttur ... þaut bara hjá áður en ég náði að átta mig að mánuður ástarinnar væri við völd. Vil ég nota tækifærið og þakka fyrir öll valentínusarkortin og blómvendina, ég mun láta ritara minn svara tilboðum á næstu dögum. Lygi - hversu svalt væri það samt að vera með ritara ..... Ullandi 

En já ekki margt að frétta núna. Lífið gengur sinn vanagang með strykferðum og jú styrkskrópum líka reyndar. Núna í augnblikinu er einhver horpest í heimsókn hjá mér.. Hér má sjá snýtubréf fljúga undan sænginni í sófanum á milli þess sem hún tekst á loft undan hóstaköstum illa fyrir kallaðs eiganda hennar - mín . Held ég þrufi jafnvel að fara að skipta grófu eldhúsrúllusnýtubréfnum út fyrir mjúkan lambapappír sökum nefsærinda, en kannski læt ég mig bara hafa þetta og klíni á mig kremum, það er eitthvað sem ég kann Glottandi En þetta er ekkert sem hunangste með engiferrót og góður svefn geta ekki lagað og stefni ég á mæta fílhraust í vinnuna í fyrramálið laus við allan óbjóð Glottandi 

En jæja þetta lélega blogg fer á spjöld sögunar fyrir tímaeyðslu .. bæði lesenda þess og ritara (hey aftur þessi ritari) en ég meika ekki að skrifa meir ætla að möndla mér töframeðal og snýta mér.

Gúccí .... pestaberi og (ekki) ritari

Ó já hér er ég

29. janúar 2008 klukkan 09:27
Vá glöggir lesendur hafa vafalaust tekið eftir því að "internetrúntur" er ekki á daglega verkefnalistanum mínum lengur.  Ástæðan er samspil nokkurra þátta ... fornaldargömul tölva er númer eitt á listanum .. fast á hæla hennar fylgir einstaklega hægt net sem dettur út villevek ... nú á eftir því kemur vissulega tímaleysi mitt. En hér er ég komin og því engin ástæða til að halda áfram að finna afsakanir.

Það sem helst er að frétta er líkamsræktarátakið er að ná nýjum hæðum þessar vikurnar .. þar sem að ræs er klukkan 5:20 og mæting í styrkinn klukkan 5:50. Jújú keppnisátak í gangi og því fylgir að sjálfsögðu skynsamlegra líferni, hollt matarræði og tvímælalaust mun minni bjórdrykkja! REyndar skellti ég mér nú á þorrablótsball á laugardaginn og fékk ég líka að súpa seyðið af því í gymminu í gærmorgun og í morgun ... gat ekkert hlaupið og blés og fnæsti á hlaupabrettinu, mikið að ég slefaði ekki bara á mig líka!! En ég bind miklar vonir við að þolið verði komið í lag í fyrramálið og ég geti þá skokkað aðeins á brettinu án þess að íþróttagarparnir við hliðina á mér eigi á hætti að fá slef, svita eða jafnvel bara útlim sem ég ræð ekki við framan í sig!!!

Jú semsagt bara allt í lukkunnar velstandi hér á bæ .. Gráni er eins og skriðdreki í öllum þessum snjó .. hann er reyndar minna fyrir hálkuna. En þá er bara um að gera að gefa sér nægan tíma .. enda verður hann táningur á þessu ári (13) og vitum við nú öll hvernig unglingaveikin er. Stundum vill hann bara ekkert beygja þangað sem ég ætla að beygja .. þá heldur maður bara afram, blíðkar hann aðeins og reynir svo að plata hann með því að fara mun hægar fram hjá beygjunni næst og smeygjir sér svo án þess að hann taki eftir því. Það er alltaf eitthvað hægt að plotta.

EN jæja nú þarf ég að þjóta í klippingu.
Um helgina hittið mig í borgarleikhúsinu og í afmæli hjá eygló speygló þanna bara !

Gúccí ... ökuþór og hlaupagikkur

Skil´da vera jólahjól ...

20. desember 2007 klukkan 19:29
... eða kannski i pod ... eða jafnvel ógilla gorgeus stígvél úr eðal gúmmíi!! maður veit aldrei hvað leynist inni í fallega innpökkuðu bögglunum undir trénu.  En eitt veit ég ... ég hlakka svo til Hlæjandi 

ég get ekki beðið eftir jólunm ... reyndar er ég líka pínu spennt að þau klárist og venjuleg rútína tekur við.  Ekkert smákökuát og jólaölsþamb!! Það eru klárlega engar framfarir í styrk þessa dagana ... reyndar hef ég orðið vör við örlítið bakslag .. get ekki hlaupið/labbað jafn mikið og fyrir 2 vium og ég er orðin stirðari Öskrandi  Asskotans smákökuát í bælinu.  Já bælið er orðið minn matargriðarstaður á kvöldin. Í gærkveldi átti ég mjög notalega stund þar sem ég hrofði á friends og raðaði á meðan í mig 4 kleinuhringjum og nokkrum smákökum Koss hmmm ... en sem betur fer eru bara jólin einu sinni á ári. Svo tekur maður 11 mánuði í að ná þessu af sér aftur ... ákkurat orðin passlegur fyrir næstu jól. Ég er nú samt pínu stressuð að ég verði að athlæji í jólaboðinu okkar... þar sem að allir fjölskyldu meðlimir eru vigtaðir og það skráð samviskusamlega inn í EXEL nú svo er gargað upp hvað viðkomandi hefur lést eða þyngst mikið síðan árið áður Ullandi að sjálfsögðu eru svo verðlaun í boðinu .. fyrir þann þyngsta þ.e.a.s ... undarlegar hefðir .. en samt ómissandi og mjög fyndið!!

Nú þarf maður að fara að huga að fallegum jólafötum svo að maður fari nú ekki í jólaköttinn .. ég er reyndar´tvisvar búin að kaupa mér jólaföt en slysaðist til að nota bæði dressinn í einhverrri fatakrísunni ... þannig að það stefnir allt í dress númer 3 Hlæjandi gott með mig ....

Gúccí ... santas little helper ...

Af jólum og fleiru

12. desember 2007 klukkan 20:16
... halló halló. Líkamsrætarátakið gengur eins og í sögu og er ég orðin hel köttuð í þessum rituðu orðum (lygi). En allavega þá er ég svo líkamlega sigruð eftir styrksæfngarnar að ég hef bara ekki haft orku í skrif ... ég er líka alveg sigruð á andlegu hliðinni eftir að hafa samið öll jólakortin til ykkar!  HAHAHA glætan ... ég hef nú ekki sent jólakort í fjölda ára ... fyrir utan einhvern misskilning í hitt í fyrra. En þið sem fenguð kort frá mér í hitt í fyrra: þau gilda enn ... reyndar gilda þau til 2010 ef mig minnir rétt Hlæjandi

Já en allavega þá hefur margt gerst síðan síðast ... ég er flutt í glæsivilli á arnarnesinu ... gráni gamli stendur þar í innkeyrslunni nýsprautaður og glænýjum felgum og bíður þess að þeysa með mig út á reykjavíkurflugvöll þar sem einkaþotan mín bíður eftir að skutla mér til NY í vinnuna þar sem ég meika allt fræga fólkið!! Töluvert mikið sössess á tveimur vikum eða svo finnst ykkur ekki ?

Nú er enn einu sinni alveg að koma helgi og þessi verður með þeim skemmtilegri ... stelpuhittings ... ball og allt af verða kreisí! Pant fara á trúnó!! Allavega þá eru Sirrý og Hildur komnar heim og hún hólmfríður mín væntanleg á föstudag og ef það er þá ekki tími fyrir samkuntu og sjúss þá veit ég ekki hvað Glottandi Ég og heitmey mín hún Tóta getum allavega ekki beðið eftir að hitta eitthvað annað fólk hehe. En svo er reyndar spurning hvort að við getum gert okkur skiljanlegar meðal annars fólks ... ætli við séum komnar með eigin málýsku ?? allavega höfum við heyrt því fleygt að það þurfi að fylgja leiðbeingarbæklingur með samtölum okkar Hissa  En það er nú eitthvað held ég sem lærist bara á góðum 5 mínútum.

Hlakka til að sjá ykkur um helgina .. eða eftir helgi þið sem komið seinna í "sveitina".

Eru ekki allir búnir að panta sér nsyrtingu fyrir jólin .. allt að fyllast á stofunni ... engin má fara í jólaköttinUllandi

Gúccí ....massatröll og gleðipinni

Dömur mínar og herrar haldið ykkur fast ...

21. nóvember 2007 klukkan 20:15
jú nú er átakið hafið.

Eftir að hafa velt fram mörgum hugmyndum um líkamsrækt, fengið enn fleiri góðar ábendingar og meira að segja reynt sumar ... þá er ég dottin á lausina. Gönguhópurinn reyndist ekki vera að gera góða hluti þar sem að hann var bara virkur eina kvöldstund .. lengra náði gamanið það ekki hjá okkur ofurskipuleggjundunum.  Sundferðin góða endaði ekki vel eins og Tóta hefur svo skemmtilega minnst alltof oft á á þessari síðu Ullandi óg ekki virkaði ultratone ævintýrið heldur þar sem að ég hafði aldrei "tíma" til að fara í tækið góða.
Fyrir valinu varð sá möguleiki sem var hvað sístur ... semsagt sá að hlaupa (í mínu tilfelli labba) á staðinum innanhús í svitakompaníi við alltof marga og borga fyrir það alltof marga peninga. Já við erum að tala um líkamræktarstöðina Styrk!! Eftir að við Tóta höfðum skipst á að vera veikar og/eða kvefaðar og þar af leiðandi engan vegin "komist" í utanhússgöngu eða blóðugar sundferðir þá tókum við þá skemmtilegu ákvörðun að hefja innanhús líkamsrækt! Og jú .. 2 dagar búnir og harðsperrurnar eftir því. 2 morgna í röð höfum við innanhúsmeistararnir í svefni og snoozi vaknað fyrir allar aldir og brunað í ræktina. Já takk hrós handa okkur Hlæjandi 

Jú þar sem að ég er nú frekar oftækisfull í því sem ég byrja á (þ.e.a.s fyrstu dagana allavega) þá hafa þessir 2 dagar ekki gengið snuðrulaust fyrir sig. (man einhver eftir því þegar ég ákvað að skella mér á eina fimleikaæfingu á gamalsaldri og sætti mig ekki við að vera ekki lengur liðug og góð og ég var þannig að ég endaði með skaddaðan lærvöðva eftir UPPHITUN, kláraði nú samt æfinguna með því að bíta heljarfast á jaxlinn og endað svo á hækjum í tvær vikur eða svo ... töffó) En hvað um það .. í dag ætlaði ég nú aldeilis að sýna MAgga Scew takta í armbeygjunum og ná að gera allavega fleiri en 10 ... jú ég náði því rúmlega en í staðin klikkaði eitthvað í herðablaðinu eða þar við og ég læstist í hálsinum!!! LLL --- úði! En ég skellti mér bara beint í sjúkraþjálfun til að láta græja þetta í hvelli. Svo tók ég smá bað áðan með tilheyrandi nuddi og heilsuræktargyðjurnar lofa þá verð ég orðin ökufær á morgun Glottandi óska eftir sjálfboðaliða til að nudda á mig hitakremi eitthvað fram eftir nóttu ... Saklaus

Á morgun kemur loksins dagurinn sem ég hef beðið eftir svo lengi .. jólaljósin í selfossbæ verða kveikt !! víhííí hóhóhó 

Um helgina ... finnið þið mig í eldhúsinu að baka smákökur og syngja jólalög.

Gúccí ... íþróttahetja og jólabarn

Hvanneyri hér kem ég !!!!!!

16. nóvember 2007 klukkan 13:36
... Fannst bara réttast að vara ykkur við Glottandi

Góða skemmtun í pólskri stemningu á kaffi krús um helgina .. ég verð að bjóða í hlut í hrút og að lokum að dansa af mér tærnar í allt öðru póstnúmeri.

Til hamingju með dag íslenskrar tungu og farið nú varlega í goggolíuna um helgina!

Gúccí .... flakkari og fjörgleypir

Bananans ....

07. nóvember 2007 klukkan 19:37

Spurning að láta eitthvað í sér heyra ... það hefur nú sjaldan verið vandamál hjá mér.  Nú er stóra sjónvarpskvöldið í vændum og ég slæ hausnum við vegg yfir að vera ekki með stöð 2 plús í kvöld!! Það er ferlegt að vera svona mikið sófadýr.  Hvað getur maður nú svo sem annað til bragðs tekið, jú það er reyndar hægt að fara í bíó og vera þar svona hægindastóladýr. En það hefur nú hingað til ekki verið mín uppáhaldsafþreying að fara í kvikmyndahús ... þar sem að ég er ekki að ná að hafa það kósí í þessum hægindastólum, maður þarf víst að vera eitthvað yfir einn og sextíu til að ná niður í gólfið svo maður geti spyrnt sætisbakinu aftur og slappað af. En ég næ því ekki og þarf því að sitja teinrétt í mínum stól á meðan manneskjan fyrir framan mig hallar sér á hnén á mér. Sem er reyndar þó skárra heldur en að höfuðið á manneskjunni sé í beinni sjónlínu!!  


Já gönguklúbburinn tók sér frí í kvöld vegna anna annars meðlimsins. En það er nú allt í lagi það er ennþá alveg vel rúmur mánuður til stefnu í átakinu í kjólinn fyrir jólin! Nú fer að styttast í að maður skipti bjórnum út fyrir hvítvín, latte út fyrir soyja latte (sem er btw hryllingur) og hamborgara út fyrir salatbarinn, til að spara nokkrar kaloríur ;)

 

En nú fer að líða að ER tíma og bið ég ykkur því vel að lifa og svo sjáumst við bara um helgina kasski !!Hlæjandi

 

Gúccí ... náttfatastriplingur og kaloríureiknari (lygi)